18.03.2010 19:15:51 / bibbasvala
Það skal tekið fram að broskallarnir komu gefins frá bloggsíðunni. Ég er ekki týpan sem fylli tölvupóst til ókunnugra af brosköllum...
Hello,
We've made the modification of the positive altitude change, the 2010
Laugavegurinn race gives now 1 point for 2011 registrations.
Best regards
hapes="_x0000_s1026" />Ultra-Trail du Mont-Blanc®
Anne GREUX
tel :
+33 (0)4 50 53 47 51
www.ultratrailmb.com
----- Message d'origine -----
De: Bibba og Ásgeir
Cc: marathon@marathon.is;
Objet: RE: Ultra-Trail du Mont-Blanc® - Newsletter 2010 #1
Date: 17/03/2010 22:36:27
/>
Hi />
I am sad to see that you have excluded Iceland from your list of
nationalities. />
I am also wery sorry to see that you have dropped Laugavegurinn,
the only Icelandic montain run from your list of qualifying races. The
information about the altitude change on your website is wrong. According to
the official site of Laugavegurinn it is 1900 meters, not 900, and though the
altitude change is not much, the terrain is rough, allt rail and the flat part
is mostly sand.
I can see why you have not got the right information about the altitude change,
it is not in the english part of the web site, only on the icelandic : http://marathon.is/kort/haeeakort
(the digits in the last sentence, 1900 m. upphill, 2200 m. downhill). />
But nevertheless, the changes that exclude any run that is
shorter than 65 km. excludes many Icelandic mountain runners from participating
in your run as we have to go abroad to get qualifying points. I hope with all
my hart that you will reconsider your decision. /> />
>Regards, />>
Bryndís Baldursdóttir />
Ultra-runner /> />
>
>
/>>>
»
17.03.2010 22:02:18 / bibbasvala
Svefn : 8 tímar
Hreyfing : rúmir 9 km. á tveimur ekki jafn fljótum
UTMB er búið að taka Laugaveginn út af listanum yfir hlaup sem gefa punkta
fyrir hlaupin þeirra.
Á vefsíðunni þeirra stendur að hæðarhækkunin á Laugaveginum sé ekki nema 900
metrar. Það er svosem ekki skrýtið þó
að þeir haldi það, - upplýsingarnar um hæðarhækkunina eru ekki á ensku á síðu
Laugavegsins heldur bara á íslensku.
Eins og er er þá ekkert íslenskt fjallahlaup sem gefur punkta inn í þessi
hlaup. Laugavegurinn hefur aldeilis gildisfallið. Þetta er eiginlega bara pínulítið
skemmtiskokk í augum alheimsins. Til að
gefa punkta þarf fjallahlaupið að vera a.m.k. 65 km. langt og hæðarmunurinn
þarf helst að vera samtals 3500 m. hækkun.
Hlaup sem mundi byrja í Skógum, yfir Fimmvörðuháls og síðan upp
Laugaveginn mundi gera gæfumuninn.
Kannski maður flytji bara til Noregs. Börkur virðist fíla sig vel þar 
»
16.03.2010 22:17:37 / bibbasvala
Svefn : 8 tímar
Hreyfing : 1 klst. klifurhús
Þessa dagana finnst mér notalegt að vera með harðsperrur. Kannski er það vegna þess að ég er ekki
komin með neina pressu á mig ennþá að vera að æfa á fullu. Þetta er eins og að vera með timburmenn og
þurfa ekki að gera neitt nema liggja í sófanum með kók og snakk og horfa á
sápur. Það gat alveg verið þægilegt hér
á árum áður að vera með timburmenn, bara ef maður gat legið í leti í
friði. Núna eru harðsperrurnar mínir
timburmenn. Næs.
»
15.03.2010 19:43:09 / bibbasvala
Svefn : 8 tímar
Hreyfing : 7,5 km. sprettæfing á brautinni
Vigtin : 79 kg.
Ég sveiflast á milli þess að freistast til að taka á því og reyna að halda
aftur af mér. Það er alveg geggjað að
finna að maður getur hlaupið og ég held að þrekið sé að koma aftur. Mæðin hefur að vísu ekki lagast en hún háir
mér ekki í styttri sprettum og tempóhlaupum á sléttri braut svo að ég á að geta
æft aðeins.
Annars er æfingaprógrammið mitt sundurskorið af allskonar krossþjálfunardóti
sem má deila um hvað gerir mikið gagn.
Síðasta vika var til dæmis svona : 3 klst. hlaup, 2 klst. klifurhús, 2
klst. mótorkross. En mestu máli
skiptir að það er gaman.
Hitt er svo annað mál að nú verð ég að fara að brenna meiru en ég borða... eða kaupa stærri föt. Ég verð að leggja skvísubuxunum mínum því
þær skerast svo inn í vömbina á mér að það er vont að sitja í þeim. Framundan : Dauðans aðhald alveg fram að næstu
fermingarveislu 
»
14.03.2010 22:51:23 / bibbasvala
Svefn : Já
Hreyfing : Nei. Aðallega gengið um gólf og bölsótast
Loksins er maður heima um helgi og eiginlega ekkert sérlega mikið að gera og
nei, þá þarf KoobFace „vinur“ okkar að gera innrás í annars friðsælt heimilislíf
húsfreyjunnar sem hafði hugsað sér að spranga um heimilið með svuntu og gera
kannski skurk í þvottafjallinu.
Eins og flest ykkar vitið sem álpist hingað inn þá er sú sem þetta ritar fyrst
og fremst tölvunörd og uppreisn tölvunnar merkir ekki aðeins að hún verður
frústreruð yfir að geta ekki bloggað eða kíkt á fésbókina og skrifað í stöðuna
hvað hún er dugleg að baka snúða. Nei,
aðallega þá merkir þetta að vinnan sem nördinn reynir að sinna þegar stund
gefst milli æfinga og útileikja verður öll mikið óaðgengilegri því þá verður að
keyra út í bæ til að sinna kvöld og helgarvinnu.
Bibba : Ekki kát í dag og sér til þess
að enginn annar á heimilinu sé það heldur !
P.S. KoobFace er eins og glöggir lesendur hafa þegar getið sér til um viðsnúningur á orðinu Facebook. Ekki ... OG ÞÁ MEINA ÉG EKKI smella á linka sem hafa ekki lýsingu á íslensku frá þeim sem sendir ykkur þá eða póstar þá inn. !#$%"#$ ykkar !!!!!!!!
»
13.03.2010 20:26:43 / bibbasvala
Svefn : 8 tímar
Hreyfing : 2. tíma mótorhjólatúr
Æfing dagsins var geggjaður mótorhjólatúr í sandi, drullu mýrum og móum.
Þessi tvö skipti sem ég er búin að fara eitthvað á mótorhjólinu mínu hef ég haldið mig á veginum en í dag var það ekki í boði.
Hjólið mitt er ekki mjög kraftmikið og á erfitt með að bera mig í djúpum sandi. Fyrst drapst bara á því en svo komst ég upp á lag með að gefa allt í botn og ýta mér áfram þar til það hlýddi mér.
Það tók mig klukkutíma að komast upp á lag með að skipta um gír vegna þess að hjólið snarstoppaði í hvert sinn sem ég snerti kúplinguna og ég var til skiptis ekki nógu fljót að skipta og ekki nógu nett á kúplingunni. Í lokin var ég farin að hjóla á fullu gegnum sand og drullu og yfir hæðir og hóla. Ég meira að segja fór yfir smá vatn í lokin. Æði skæði.
Eftir fyrsta hjólatúrinn minn var ég alveg frá af harðsperrum í nokkra daga og þá var ég bara á götunni. Eftir þessi átök í dag er ég alveg búin á því. Geri ráð fyrir harðsperrum dauðans á morgun.
»
11.03.2010 22:52:25 / bibbasvala
Svefn : 8 tímar
Hreyfing :
1 klst. mótorhjólatúr
1 klst. klifurhús
Vigtin : ca. 78,2
Þriðji dagur í aðhaldi og ég er enn á stígnum mjóa. Fengum okkur reyndar hammara síðla kvölds en ég sleppti frönskunum og kókinu svo að ég er nokkuð sátt bara. Það varð eitthvað lítill tími fyrir kvöldmatarstúss þegar búið var að taka hjólatúr um Reykjanesið eftir vinnu og mæting í klifurhúsið klukkan átta. Lakkrísinn í skálinni í morgunkaffinu freistaði mín ekki en ég gat ekki stillt mig um að næla mér í örfáar franskar kartöflur úr skammtinum hans Ásgeirs eftir að hafa nánast ekkert étið frá hádegi til hálf tíu. Ég þarf að skipuleggja mig betur varðandi mataræðið. Vantar bæði tíma til að versla og tíma til að borða. Þá er nú ekki leiðinlegt að lifa
»
10.03.2010 20:57:11 / bibbasvala
Svefn : 7 tímar
Hreyfing : 7 km. skokk og labb með Bíddu aðeins
Ég var á Siglufirði um síðustu helgi á snjóflóðaleitarnámskeiði.
Hér kemur frásögnin af því :
http://hssk.is/index.php?option=com_content&view=article&id=651
»
09.03.2010 22:55:49 / bibbasvala
Svefn: 10,5 tímar
Hreyfing : Einn og hálfur tími í klifurhúsinu
Vigtin : Ennþá 79 kíló
Fyrsti dagur í aðhaldi. Gott að vera bara aðallega að heiman eins og hinir krakkarnir. Þau eru öllsömul þvengmjó. Dagurinn hjá þeim er svona : Beint úr skólanum í tómstundamál, svo í klifurhúsið, svo á fyrirlestur. Lifað á skyri, banana og kakóbolla. Ég borða AÐEINS meira.
Það slapp upp í mig einn lakkrísbiti í morgun. Annars er ég góð.
»
08.03.2010 20:06:00 / bibbasvala
Svefn : Já
Hreyfing : ca. 4 km. hlaup og labb
Vigtin : 79 kíló
Ég nenni ekki lengur að vera sjúklingur. Út að æfa aftur. Ég hef fimm mánuði til að undirbúa mig fyrir þennan Ironman þarna í ágúst og það er alveg nægur tími en það má ekki vera mikið minna. Svo er ég ekki að fíla þetta kyrrsetulíf því að ég er sko ekkert að éta minna en ég gerði þó ég æfi ekki neitt. Afleiðingin er sú að ég er orðin 9 kílóum of þung. Mér er ekki til setunnar boðið.
Það gekk ágætlega að hlaupa en ég varð að láta deigan síga þegar ég var orðin fjólublá í framan og óskýrmælt og hlaupafélagarnir farnir að hafa áhyggjur. Kannski kemst ég aðeins lengra næst áður en það gerist.
Annars er ekkert leiðinlegt að vera aumingi á mánudagsæfingu þegar það er svona gott veður. Hópurinn var dreginn niður á braut þar sem ég stillti mér upp á kantinum og æpti mig hása. Fótboltastelpurnar sem voru að æfa þarna á sama tíma horfðu samúðaraugum á litla hópinn minn þegar ég öskraði : „Og svo FRAMSTIG TIL BAKA“ .
»
04.03.2010 21:47:15 / bibbasvala
Það er vægast sagt alveg ótrúlega þægileg tilfinning að anda með lokaðan munninn.
Þetta er alveg nýtt fyrir mér.
Þessi nefaðgerð var alger snilld.
»
03.03.2010 20:54:13 / bibbasvala
Það er stór spegill hérna í ganginum sem ég á leið framhjá oftar en mig langar þessa dagana því að þegar ég gjóa augum í hann í framhjáhlaupi þá sé ég það skýrt og greinilega að vömbin á mér er farin að ferðast á undan mér. Þetta varpar nýju ljósi á merkinguna orðsins fyrirferð 
Nú er eitt af þessu þrennu fyrirliggjandi :
- Minnka vömbina
- Fjarlægja spegilinn
- Fara í brjóstastækkun
»
02.03.2010 19:03:08 / bibbasvala
Æfing dagsins var göngutúr frá bílastæðinu við Austurbæjarskóla, niður í Tryggingastofnun að sækja um afsláttakort og til baka aftur. Ætli þetta hafi ekki verið svona einn og hálfur til tveir kílómetrar.
Leiðin niður eftir var ekkert mál. Bakaleiðin var öllu erfiðari og ég var farin að dauðsjá eftir þessu þegar ég loksins komst í bílinn. Þá langaði mig mest til að skríða upp í aftursætið og fara að sofa.
Það hvarflar að mér hvort keppnissögur framtíðarinnar hjá mér komi til með að fjalla um hetjulega baráttu mína við að komast gangandi milli húsa í borginni .. en sem betur fer er maður ekki alltaf nýbúinn að láta nefbrjóta sig
»
02.03.2010 00:03:56 / bibbasvala
Svefn : mucho mucho
Ég sofnaði um tíuleytið á laugardagskvöldið og vaknaði klukkan fjögur á sunnudag.
Í morgun taldi ég svo að ég væri tiltölulega hress eða að minnsta kosti útsofin og ákvað að reyna að halda mér vakandi og gangandi, stússa kannski í þvotti og tiltekt. Uppskera dagsins var að ég braut saman fjórar skyrtur, endurræsti þvottavélina sem innihélt blautar gallabuxur síðan á miðvikudag og týndi nokkrar jólakúlur af jólatrénu sem stendur ennþá í stofunni. Eftir þetta er ég svo alveg búin. Þvílíkur erfiðisdagur.
»
26.02.2010 13:52:05 / bibbasvala
Í dag má ég snýta mér. Bara laust.
Í gær mátti ég sjúga bara laust upp í nefið.
Þegar ég var krakki skipti ég fólki upp í sjúga og snýta fólk. Snýta fólkinu fannst ógeðslegt að sjúga upp í nefið. Það var alltaf á eftir krökkunum sínum með tissjú að láta þau snýta. Aumingja þau. Ég var sjúga fólk. Sjúga fólki var alveg sama hvernig aðrir fóru að því að losna við sitt hor.
Mér finnst ekkert yfirþyrmandi óþægilegt að vera með hor í nös. Ekki heldur blóð. Ef ég er bara ekkert að kássast í nefinu á mér þá líður mér alveg þokkalega og ég get alveg notað munninn til að anda. Ég hlakka nú samt alveg til þegar ég fer að geta notað þennan nýja og aðeins rýmri öndunarveg til að soga til mín súrefni.
Aðallega er ég þannig að ef ég stend í einhverjum stórræðum af stærri gráðu en þeim að sitja í stofustól og glápa á imbann þá fer að blæða úr nefinu á mér. Þess vegna er betra að sitja bara kyrr.
Í gærmorgun fór ég nú samt í alveg risa ferðalag. Hélt það væri nú ekki mikið mál að skreppa ein á bílnum niðrettir að láta taka spelkurnar úr nefinu á mér. (hefði aldrei órað fyrir að hægt væri að troða svona stórum spelkum inn í nefið á mér .. þó það sé nú kannski ekkert lítið.... )
Til að gera langa sögu stutta þá sat ég í ófærðinni og horfði á rúðuþurrkurnar í hátt í klukkutíma áður en ég komst til læknisins og vonaði bara að ég yrði ekki olíulaus í stórhríðinni og þyrfti að hringja á björgunarsveit....
Gott að vera heima og sooofaaaa
»
Síður:
1 2 3 ...
121